Það var okkur mikill heiður að halda opið málþing með Johan Rockström föstudaginn 9. október í Háskólabíó. Rockström er einn fremsti vísindamaður heims á sviði sjálfbærni- og loftslagsmála og flutti hann erindi um stöðu náttúru og loftslags, þolmörk jarðar og þær kerfisbreytingar sem nauðsynlegar eru til að tryggja sjálfbæra framtíð.
Andri Snær Magnason, rithöfundur, flutti ávarp í upphafi málþingsins. Í kjölfarið flutti Johan Rockström erindi sitt og að því loknu átti hann áhugavert samtal við Silju Báru Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands, um áskoranir og tækifæri samtímans í loftslags- og sjálfbærnimálum. Samtalinu stýrði Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands og fundarstjóri málþingsins.
Við þökkum öllum sem sóttu málþingið fyrir komuna og þann mikla áhuga sem viðburðurinn vakti. Það var einstaklega ánægjulegt að sjá svo marga taka þátt í samtali um eitt mikilvægasta viðfangsefni samtímans.
Upptöku af málþinginu má nálgast á YouTube-rás Háskóla Íslands. Myndir frá viðburðinum tók Kristinn Kristinsson.